Jæja,
alveg heilir fjórir dagar síðan ég bloggaði síðast! Veit ekki
alveg hvort að ég nenni að hafa þessa síðu í gangi á meðan
við stelpurnar erum með hina...! Er mikið búin að pæla í því!
Allavega taka smá pásu hérna! En já, þá er kannski að segja
frá helginni!
Laugardagur: Byrjaði í nýrri vinnu sem er
bara mjööög fín! Líst bara þónokkuð vel á hana! Síðan var ég búin
að vinna kl. 4 og Vilborg hafði mætt kl. hálf 4 og við löbbuðum í
Shell til Kristínar! Kíktum aðeins inná tjaldsstæði þar sem öll
skemmtunin var! Svo ákváðum við að skella okkur í sund á Eskifjörð!
Og við fórum! Meira en að segja Vilborg skellti sér með okkur!
Sólin fór nú reyndar þegar við komum en það var samt gaman! Ég
drukknaði næstum því úr hlátri þegar Vilborg öskraði eitthvað: "Nei
skoh! Keikó í sundi!" Hún hélt að það yrði engin þarna feitari en
hún! Hún er nebbla svo feit! Ehemm.. eða þannig!
Síðan keyrðu
þær mér heim! Og um kvöldið kom Kristín að ná í mig og við rúntuðum
á Fásk að hitta Fanneyju! Tókum smá hring! Svo fórum við Kristín á
Eskifjörð og tókum smá rúnt! Bróðir Herdísar, Pétur, kíkti með
okkur! Fórum til Viborgar og hún fór síðan í Valhöll rsum! 
Síðan keyrðu þau mér bara heim!
Sunnudagur: Vinna til kl. 4 og síðan fór ég
til pabba! Við fórum eitthvað að slá grasið og fara með heyið
eitthvert
Fengum okkur síðan shake! Heiða bættist síðan í hópinn!
Svo fórum við bara heim aftur og ég held að ég hafi farið ágætlega
snemma að sofa! Enda vinna daginn eftir!
En í gærkvöldi kíkti ég til Ragnheiðar og
það var mjööög fínt! Þangað til að kl. var orðin margt og allir
orðnir þreyttir og ég leeeengi að bíða eftir fari! Tókum rúnt með
Kristínu Ingu og svo Kára! Stoppuðum hjá Shell að skoða flottar
græjur í bílnum hjá e-um! Svo fór ég bara heim! Ekki beint að sofa
eeeen...
...ég ætla nú ekki að segja hvað ég fór að
gera.. ehemm!!!
Svo núna er í tveggja daga fríi! Fer að
vinna á fimmtudaginn aftur! Og vinna stanslaust til 30. jún! Svo
verð ég móst læklí ein heima í næstu viku! Jeeeeee! Það verður
gaman! Vona bara að kjellan verði framyfir helgi! En já, hver veit
hvað gerist á þeim tíma! Hell nó! 
Læt þetta nóg í bili og enda þetta á góðum
myndum frá tveimur góðum helgum!!!

þegar ég mætti fersk í útilegu og að svíkja lit! Mætt þarna í
Bónuspeysu! Krónzor is going down!!!

sjómannadagskvöldið! Rétt áður en við fórum á ball á Fásk!
Tekin fyrir aftan apótekið á Esk! Vantar bara Vilborgu á myndina...
en hún tók myndina! 
Góðar helgar! Báðar tvær 
-Ragnhildur!